Tuesday, September 4, 2007

Blíbbing IKEA

Smá mont fyrst... Dúllurnar

eeeennnn



Ég er á nippinu með að versla annars staðar en hjá den svenske - hillan mín ekki væntanleg til landsins næstu tvær vikurnar og guð einn veit hvað gerist eftir það!! Ok þolinmæði kannski ekki mín helsta dygð en samt... Kannski ætti ég bara að voga mér inní aðrar verslanir, þótt ég hafi það varla í mér..Það verður allavega framhald á þessu skápamáli mjög fljótlega





Annars er ég komin í nýja vinnu. 1. dagurinn í dag og sófarsógood. Spennandi að sjá hvað setur. Adam komin á fullt í skólanum og hann er bara vel sáttur sem betur fer. Vissi ekki alveg hverju ég ætti von á en úff hvað ég er fegin. Og stelpurnar komnar á leikskólann loksins.. langþráð gleði hjá okkur öllum mæðgum ;o)


Er það kannski málið að ég verð bara hér 4everandever á þessum litla sæta kalda klaka?


Verra hefur nú gerst